Svartbauna og hýðishrísgrjónaborgarar - Vegan



Ég gerði þessa borgara fyrst fyrir örfáum mánuðum síðan. Fann uppskrift á netinu sem í var rasp, egg ofl. Þeir voru mjög góðir en langaði að prófa að gera þá aftur með hýðishrísgrjónum og sleppa eggi og breyta aðeins kryddum. Fyrir vikið verða þeir vegan eða án dýraafurða. Ég borða alveg dýraafurðir en eins og ég segi í færslunni á undan, þá er bara fínt að prófa eitthvað annað stundum.
Þetta er ódýr og bragðgóður matur, og að setja þessa borgara í gróft brauð með fullt af grænmeti og góðri sósu er pottþéttur og mettandi kvöldmatur.

Aðferðin er sú sama og ég notaði við þessi kjúklingabaunabuff en innihaldsefnin ansi ólík. Fyrir grænmetisætur er þetta frábær kostur í stað hamborgara!

Í borgarana þarftu:

3 bolla af soðnum svörtum baunum. (bæði hægt að sjóða sjálfur eða kaupa í dós)
2 bolla af basmati hýðishrísgrjónum
4 tsk dijon sinnep
2 tsk laukduft
2 tsk paprikuduft
1 tsk hvítlaukssalt
2 msk þurrkuð steinselja
pipar og salt eftir smekk (finnst gott að setja vel af pipar)

Rasp:
smá spelt, smá sesamfræ

Ef þið viljið krydda meira eða minna, þá er það allt í fínu. Það góða við þetta er að það er hægt að smakka til svona borgara áður en þeir eru steiktir. Maður er auðvitað ekki vanur því með kjötborgara ;)
Mótið buff, setjið þá í rasp og kælið í minnst hálftíma.
Steikið upp úr jurtaolíu og leggið á pappír til að taka umfram olíu. Þessa borgara er mjög gott að frysta.
Verði ykkur að góðu!

Ummæli

Vinsælar færslur