Lang bestu piparkökurnar

Piparkökubaksturinn í fullum gangi hér og Star Wars kallinn auðvitað með. Myndgæði mættu þó vera betri en hér var komið myrkur og eldhúsljósið varð látið duga...



Í mörg ár hef ég byrjað aðventuna á því að gúggla piparkökuuppskriftir. Hef aldrei verið nógu sátt, annað hvort of harðar eða of mjúkar, bragðlausar eða bara eitthvað við þær sem mér líkar ekki við.
Þangað til fyrir svona 2-3 árum sem ég rakst á uppskrift sem mig minnir að sé frá Kötlu en er bara ekki alveg 100% viss. Í fyrra var ég svo sniðug að skrifa uppskriftina inn í uppskriftabók sem ég handskrifa svona "best of the best" uppskriftir og mun hún verða þar að eilífu.

Þessi uppskrift sameinar allt sem mér finnst að piparkökur ættu að hafa, stökkar en ekki grjótharðar, í dekkri kantinum og mjög bragðmiklar án þess að það sé samt yfirgnæfandi kryddbragð.

Þegar þú hefur prófað þessa skiluru hvað ég á við. Mæli með því að prenta hana út og geyma eða skrifa hana í "bókina" þína ef þú átt svona þreytta handskrifaða uppskriftabók eins og ég.
Eins og með flestar uppskriftir er best að gera daginn áður og geyma í kæli þangað til daginn eftir.
Einnig er mjög mikilvægt að taka deigið útúr ísskápnum eða inn af svölunum/garðinum með nokkurra tíma fyrirvara svo deigið sé ekki alveg grjóthart og ómögulegt þegar á að fara að fletja út.

Uppskriftin er semsagt þessi:

500gr Kornax hveiti
250gr sykur
180gr smjör (upprunalega uppskriftin biður um smjörlíki en ég nota það helst aldrei)
2 tsk matarsódi
2 tsk negull
2 tsk engifer
1/2 tsk hvítur pipar
4 tsk kanill
1 dl sírópið í grænu dollunum
1 dl mjólk

Setjið smjörið og sírópið saman í pott og bræðið saman við vægan hita. Þegar blandan er alveg að verða bráðin setjið þá allt krydd út í og hrærið saman. Takið af hellunni og setjið önnur þurrefni saman í hrærivélaskál. Notið krókinn og hellið sírópskryddblöndunni út í ásamt mjólk. Hrærið vel saman þangað til deigið er orðið samfellt og slétt. Setjið plast yfir skálina og kælið yfir nótt eins og áður sagði. Munið að taka deigið svo út með góðum fyrirvara.
Fletjið deigið frekar þunnt út þar sem það blæs svolítið upp.
Bakið við 195°C í ca. 6-7 mín. Kælið svo á grind og skreytið með glassúr ef vill.
Persónulega finnst mér þær eiginlega bestar án glassúrs en það er auðvitað bara smekksatriði eins og hvað annað.

Þú munt aldrei þurfa að leita að piparkökuuppskrift aftur...
Gleðilega aðventu kæru vinir!



Ummæli

Vinsælar færslur