Silkimjúkt súkkulaðitart með pistasíum, hindberjum & rifsberjum

 

Í tilefni af alþjóðlega súkkulaðideginum þann 13. September er einstaklega viðeigandi að útbúa gott súkkulaðitart og nota til þess almennilegt súkkulaði. Það er sérlega mikilvægt að nota hágæða súkkulaði og það í dekkri kantinum. Ég nota 45% suðusúkkulaði ásamt 70% súkkulaði frá Nóa Siríus. Uppskriftin er einföld og það tekur í sjálfu sér ekki langan tíma að útbúa þetta tart. Ég mæli með því að skreyta kökuna með berjum og hnetum og það er vel hægt að nota hvaða ber sem er eða hvaða hnetur sem er. Að þessu sinni valdi ég fallega rauð rifsber og hindber ásamt söltuðum pistasíum og það setti algjörlega punktinn yfir i-ið. Gleðilegan súkkulaðidag!


Innihald:

Kexbotn:

200g heilhveiti kex

85g brætt ósaltað smjör

50g sykur

 

Fylling:

200g Suðusúkkulaði frá Nóa Siríus

160g Suðusúkkulaði 70% dökkt frá Nóa Siríus

240g rjómi

60g ósaltað smjör við stofuhita

 

Skreyting:

Saltaðar pistasíuhnetur, magn eftir smekk

Fersk hindber

Fersk rifsber

 

Aðferð:

Setjið kexið í matvinnsluvél og vinnið smátt. Bræðið smjörið. Setjið kexið í skál ásamt sykri og hrærið. Setjið smjörið saman við og blandið saman með sleikju. Áferðin á að vera lík blautum sandi.

Þjappið kexblöndunni í 20cm bökuform, bæði botn og upp á hliðar. Kælið á meðan fyllingin er útbúin.

Saxið súkkulaðið smátt og setjið í hitaþolna skál. Skerið smjörið í bita og setjið yfir súkkulaðið. Hellið rjómanum í lítinn pott og hitið að suðu en varist að láta rjómann sjóða. Hellið heitum rjómanum yfir súkkulaðið og leggið disk yfir. Látið bíða í 5 mínútur. Takið diskinn af skálinni og hrærið saman með sleikju þar til súkkulaðiblandan er orðin slétt með silkikenndri áferð. Takið botninn úr kæli og hellið súkkulaðiblöndunni yfir botninn. Setjið aftur í kæli í að minnsta kosti 4 tíma eða yfir nótt.

Takið úr kæli og skreytið með hnetum og berjum. Það er hægt að útbúa þetta tart með góðum fyrirvara og skreyta rétt áður en það er borið fram.

Ummæli

Vinsælar færslur