Dýrðlegar kahlua trufflur með rjómasúkkulaðihjúp

 

Nóa konfekt er algjörlega ómissandi á jólum og hefur verið það í áratugi. Það er alltaf hægt að finna mola sem henta hverjum og einum, sum vilja bara marsípan á meðan aðrir vilja bara sjá fylltu molana. Þrátt fyrir að það sé hægt að kaupa þetta dýrindis konfekt tilbúið er alveg stórkostlegt að gera sitt eigið konfekt úr Síríus súkkulaðinu. Ég hef lengi verið mikil kaffikona og vel mér yfirleitt eitthvað með kaffibragði. Það lá því beinast við að skella í nokkrar trufflur með kaffi og kahlua líkjör. Ég hjúpa dökkar trufflurnar með rjómasúkkulaðinu og þannig næst dásamlegt jafnvægi.

Innihald:

250g suðusúkkulaði frá Nóa Síríus

120ml rjómi

1 tsk instant kaffi

2 msk kahlua kaffilíkjör

1 msk smjör

200g rjómasúkkulaði

50g suðusúkkulaði

Heilar kaffibaunir

 

Aðferð:

 

Saxið 250g af suðusúkkulaðinu og setjið í hitaþolna skál.

Setjið rjóma, kaffi, kaffilíkjör og smjör í lítinn pott og hitið að suðu. Hrærið í á meðan blanda nær suðu. Hellið yfir súkkulaðið og bíðið í 1 mín. Hrærið svo saman með písk. Látið súkkulaðiblönduna ná stofuhita, setjið þá plastfilmu yfir skálina og setjið í kæli, helst yfir nótt.

Takið skálina úr kæli og mótið litlar kúlur. Notið teskeið til að skafa upp úr skálinni og rúllið kúlunum á milli handanna en varist að gera það of lengi þar sem súkkulaðið bráðnar hratt. Setjið kúlurnar á disk eða bakka.

Bræðið rjómasúkkulaðið yfir vatnsbaði og temprið. Dýfið hverri kúlu snöggt í súkkulaði og hjúpið. Setjið á bökunarpappírsklædda plötu. Endurtakið þar til allar kúlurnar eru hjúpaðar. Kælið.

Bræðið 50g af suðusúkkulaði og dreifið óreglulega yfir trufflurnar, skreytið með því að setja eina kaffibaun á hverja kúlu. Kælið.

Setjið í fallegt box og geymið í kæli.

 


Ummæli

Vinsælar færslur