Grískar pítur með fetasósu, lambakjöti og fersku grænmeti



Pítur eru alveg framúrskarandi góður matur í miðri viku en ‏það má auðvitað fylla pítubrauð með hverju sem er. Hér er ég með alveg dásamlega gríska fyllingu sem samanstendur af lambakjöti, fersku grænmeti og kaldri sósu þar sem aðaluppistaðan er Salatosturinn og Gríska jógúrtin frá Gott í matinn. Það má auðvitað nota hvaða kjöt sem er en ég átti til afgang af grilluðu lambalæri og n‎otaði hann í píturnar en lamba eða nautahakk er ekki síðra í píturnar.

Innihald:

6 pítubrauð

400g lambahakk, eða afgangur af lambalæri. Það má einnig notast við nauthakk.

1 tsk ólífuolía

½ tsk hvítlauksduft

Salt og svartur pipar eftir smekk

Íssalat

Kokkteiltómatar

Agúrka

Rauðlaukur

Rifinn cheddar ostur frá MS Gott í matinn

Fersk steinselja


Fetasósa

50ml ólífuolía

80g salatostur frá MS Gott í matinn, olían síuð frá

80g grísk jógúrt frá MS Gott í matinn

1 tsk Dijon sinnep

½ tsk hvítlauksduft

½ tsk ‏þurrkað oregano

¼ tsk ‏þurrkað dill

1 tsk ‏þurrkuð steinselja

¼ tsk sjávarsalt

¼ tsk svartur pipar

2 msk vatn ef ‏þið viljið þynna sósuna aðeins

Sósan aðferð:

Setjið öll innihaldsefni í lítinn blandara og látið hann vinna ‏þar allt er vel samlagað. Ef ‏þarf má bæta við örlitlu vatni til ‏þess að ‏þynna hana.

Aðferð og samsetning:

Ef ‏þið notið hakk, hitið ‏þá olíu á pönnu og setjið hakkið út á heita pönnuna. Kryddið með salti, pipar og hvítlauksdufti.

Skerið ‏það magn af grænmeti sem ykkur hugnast og raðið á disk. Hitið brauðin og skerið í tvennt. Smyrjið ‏þau að innan með sósunni, stráið cheddar osti inn í og raðið salatblöðum í brauðin. Setjið kjöt og grænmeti eftir smekk ofan á salatið og toppið með fetasósunni.







Ummæli

Vinsælar færslur