Ítalskar brauðbollur með rauðu pestói, ólífum og rifnum osti





Heimabakaðar bollur slá alltaf í gegn og það er hægt að gera óendanlega margar útgáfur af þeim. Þessi uppskrift er ein af mínum uppáhalds. Þær eru alveg sérlega léttar í sér og eiginlega mætti halda að þær kæmu úr bakaríi. Pestóið gerir þær extra mjúkar og hefunaraðferðin hefur allt að segja. Þessar verðið þið að prófa!

Innihald:

700g brauðhveiti

350ml volgt vatn

3 tsk. þurrger

1 msk. sykur

2 tsk. hvítlauksduft

2 tsk. fínt mulið sjávarsalt

3 msk. kaldpressuð ólífuolía

4-5 msk. Sun dried tomato pesto frá Sacla (rautt pestó)

100g svartar ólífur, smátt saxaðar

1 egg + 2 msk. Sun dried tomato pesto frá Sacla

Rifinn ostur, magn eftir smekk

 

Aðferð:

 

Setjið þurrefni í hrærivélaskál og velgið vatnið. Setjið krókinn á og hrærið aðeins upp í þurrefnunum. Setjið vatnið saman við ásamt ólífuolíunni og pestóinu. Látið vélina hnoða deigið í að minnsta kosti 5 mínútur. Því lengur sem það er hnoðað, því betra. Setjið saxaðar ólífur þá saman við og hnoðið áfram í 2 mínútur. Takið þá deigið upp úr skálinni og mótið kúlu. Ég spreyja smávegis af olíuspreyi í skálina, set deigið ofan í og spreyja smá yfir það svo það klessist ekki við plastfilmuna sem ég legg svo yfir skálina. Látið hefast á hlýjum stað í 40 mín.

Takið þá deigið úr skálinni og klæðið 2 bökunarplötur með bökunarpappír. Mótið kúlur úr deiginu. Til þess að hafa bollurnar jafnar vigta ég hverja og eina en það er í raun óþarfi ef þið nennið því alls ekki. Hver bolla hjá mér var um 60g. Raðið bollunum á bökunarplöturnar.

Hitið ofninn á undir og yfirhita í 45°C. Úðið ofninn að innan með vatni.

Setjið plöturnar inn og úðið létt yfir bollurnar með vatni. Hefið í ofninum í 30 mín. Takið þá bollurnar út og hitið ofninn í 210°C.

Sláið eggi saman við pestó og penslið bollurnar, stráið rifnum osti yfir þær. Bakið í 10-14 mín. Berið fram með pestói eða öðru góðu áleggi. Þær eru framúrskarandi með góðri súpu.




Færslan er unnin í samstarfi við ÍSAM ehf.

Ummæli

Vinsælar færslur