Vegan sjónvarpskaka



Sjónvarpskaka er ein af þeim kökum sem flestir sameinast um að þykja góð. Hún klárast alltaf upp til agna og eru bæði ungir og aldnir jafn sólgnir í hana. Hér er ég með vegan útgáfu og hana er gott að grípa í hvort sem þið eruð vegan eða þurfið að sleppa eggjum eða mjólk vegna ofnæmis. Rapadura hrásykurinn frá Rapunzel er sérstaklega góður þar sem notast á við púðursykur og hér prófaði ég að nota hann í kókostoppinn. Hann gefur gott karamellubragð sem passar einstaklega vel í þessa uppskrift.

Innihald:

3 bollar hveiti

2 msk. maízenamjöl

1 ½ tsk. lyftiduft

½ tsk. matarsódi

300ml haframjólk

1/3 bolli oatly jógúrt með vanillubragði

120g brætt vegan smjör

70ml jurtaolía eða fljótandi kókosolía

300g hrásykur

3 tsk. vanilludropar

2 tsk. eplaedik

 

Kókostoppur

 

130g vegan smjör

130g Rapadura hrásykur frá Rapunzel

120g kókosmjöl frá Rapunzel

3 msk. haframjólk

 

Aðferð:

 

Hitið ofninn í 160° blástur. Setjið bökunarpappír í skúffukökuform og setjið til hliðar.

Setjið þurrefnin saman í skál og hrærið vel í með písk. Bræðið smjörið og setjið restina af vökvanum saman í skál eða könnu og hrærið saman. Blandið blautefnum saman við þurrefnin og setjið smjörið saman við að síðustu. Setjið deigið í formið og bakið í 30 mín eða þar til prjóni sem stungið er í kökuna kemur hreinn upp. Á meðan kakan er í ofninum útbúið þið kókoskaramelluna, þegar þið takið kökuna út úr ofninum setjið þá yfirhita á ofninn og hækkið hitastigið upp í 200°C.

Smyrjið karamellunni yfir kökuna og setjið hana aftur inn, passið að setja hana ofarlega í ofninn. Bakið karamelluna í 5 mín eða þar til hún er farin að brúnast og bubbla á köntunum.

 

Ummæli

Vinsælar færslur