Möndlu- og súkkulaði cantucci með kaffinu

Þessar cantucci kökur sem mér skilst að maður eigi ekki að kalla biscotti það sem það er víst bara „smákaka“ á ítölsku, eru algjörlega dásamlegar með góðum kaffisopa. Þær eru vegan og ótrúlega fljótlegt að henda í þær. Geymast síðan vel og haldast lengi góðar. Milt möndlubragðið fer sérlega vel með súkkulaðinu og ég mæli eindregið með því að dýfa þeim í góðan kaffibolla eins og latté með Oatly ikaffe haframjólkinni.

Innihald:

150g vegan smjör

260g cristallino hrásykur, ég notaði frá Rapunzel

2 tsk. Vanilludropar

400g hveiti

1 msk. lyftiduft

¾ tsk. Himalaya eða sjávarsalt

120ml Oatly ikaffe haframjólk við stofuhita

60g möndluflögur

80g 85% súkkulaði saxað, ég notaði frá Rapunzel

Aðferð:

Hitið ofninn í 180°C blástur og setjið bökunarpappír á bökunarplötu.

Setjið vegan smjör og sykur saman í skál og þeytið vel saman, bætið við vanilludropum og þeytið áfram. Setjið þurrefnin saman í skál og hrærið í. Setjið saman við smjörið og sykurinn og blandið aðeins saman við með sleikju. Bætið mjólkinni saman við, hrærið aðeins í með sleikjunni og blandið þá súkkulaðinu og möndlunum saman við. Setjið á borð og hnoðið saman þar til það er orðið nokkuðsamfellt. Skiptið deiginu í tvennt og mótið 2 hleifa, hafið þá í frekar mjórri kantinum og setjið á bökunarplötuna. Hafið gott bil á milli þar sem þeir fletjast vel út. Setjið í miðjan ofninn og bakið í 30 mín.

Takið þá hleifana út og leyfið þeim að kólna alveg. Skerið hleifana þá á ská með beittum hníf og raðið á bökunarplötuna. Bakið við 180°C í 10-15 mín og snúið kökunum varlega við einu sinni á bökunartímanum. 






Ummæli

Vinsælar færslur