Vanillu- og sítrónu skyrterta með blönduðum berjum

 


Söngvakeppni Evrópskra sjónvarpsstöðva er handan við hornið og þá er alveg grá upplagt að skella í veitingar með örlitlum þjóðlegum blæ. Þessi skyrterta er ákaflega fljótleg og fersk og inniheldur auk þess lítinn sykur. Í hana nota ég Ísey vanilluskyrið sem ég blanda við þeyttan rjóma. Rifinn sítrónubörkur ásamt ferskum sítrónusafa gerir fyllinguna enn ferskari og berin setja punktinn yfir i-ið. Ég ákvað að raða berjunum þannig að þau myndi íslenska fánann og þannig fáum við aðeins „Áfram Ísland“ stemninguna á partý borðið. Áfram Diljá og áfram Ísland!

Innihald:

200g heilhveiti- eða hafrakex eftir smekk.

50g bráðið smjör

400ml rjómi frá MS Gott í matinn

2 tsk. vanilludropar

2 msk. flórsykur

1 sítróna, börkurinn + safi

1 stór dós Ísey vanilluskyr

6-8 fersk jarðarber

Ca. 300g fersk bláber

Aðferð:

Myljið kexið í matvinnsluvél og bræðið smjörið. Blandið saman í skál og hellið í eldfast mót. Þrýstið niður í botninn og aðeins upp á kanta. Áferðin á að minna á blautan sand. 

Stífþeytið rjómann með vanillunni og flórsykrinum. Raspið sítrónubörkinn saman við og kreistið sítrónusafann úr sítrónunni saman við rjómann.

 Setjið skyrið saman við rjómablönduna og hrærið varlega saman með sleikju. Takið frá ca. 2 dl af fyllingunni og smyrjið restinni yfir kexbotninn.

Skerið jarðarberin smátt og raðið þeim í fánakross yfir fyllinguna. Setjið það sem þið tókuð frá af fyllingunni í sprautupoka og sprautið litlar doppur meðfram jarðarberjunum. Raðið því næst bláberjunum í ferninga og ljúkið þannig við fánann. Látið kökuna taka sig í nokkra tíma í kæli. 

Njótið með ykkar allra besta fólki!





Unnið í samstarfi við MS Gott í matinn

Ummæli

Vinsælar færslur