Silkimjúkur Oatly jarðarberjaís
Innihald:
1 ferna Oatly Visp – Þeytanlegur hafrarjómi
1 tsk. vanilludropar
1 tsk. jarðarberjadropar (má sleppa)
2 msk. hlynsíróp
¼ tsk. fínt mulið sjávarsalt
½ tsk. vanillukorn
300g fersk jarðarber
3 msk. hrásykur
1 msk. hlynsíróp
1 tsk. sítrónusafi
Aðferð:
Skerið jarðarberin í bita og setjið í skál, stráið yfir
hrásykri og hlynsírópi og dreifið sítrónusafanum yfir. Látið standa í 30 mín.
Stappið þá berin gróflega og setjið til hliðar.
Hellið rjómanum í þeytiskál og stífþeytið rjómann, setjið
dropa, síróp, vanillukorn og salt saman við og þeytið aðeins áfram.
Setjið stöppuð berin saman við og blandið saman við með
sleikju. Hér er gott að smakka ísinn og bragðbæta ef ykkur finnst þess þurfa.
Setjið ísblönduna í form með þéttu loki. Ísinn verður
betri að mínu mati ef það er hrært í honum á 30 mín fresti, þrisvar – fjórum
sinnum en það er ekki nauðsynlegt.
Njótið með góðu ískexi og ferskum berjum.
Ummæli
Skrifa ummæli