Litlar bláberjakökur með stökkum kanil mulningi

 


75g bráðið smjör

1/2 bolli sykur

1/2 bolli púðursykur

2 egg

1 og 1/2 bolli hveiti

1 tsk lyftiduft

1 tsk sjávarsalt

1/2 bolli mjólk

1 bolli frosin bláber

1 tsk hveiti


Kanilmulningur:

 30g bráðið smjör

4 msk hveiti

2/3 bolli púðursykur

1/2 tsk kanill

 

Hitið ofninn í 175°C. Það eru kannski fáir sem eiga svona kökuform en það er vel hægt að nota bollakökuform í staðinn. Setjið form ofan í hvert hólf.

Setjið smjör, sykur og egg saman í skál og þeytið vel. Blandið hveiti, lyftidufti, og salti saman við. Að síðustu hrærið mjólkinni saman við. Veltið berjunum upp úr 1 tsk af hveiti og blandið varlega saman við með sleikju.

Fyllið formin til hálfs með deiginu.

Blandið öllu sem á að fara í mulninginn saman, hann á að líkjast grófri mylsnu.

Stráið mulningnum jafnt á milli formanna og bakið í miðjum ofni í 25 mín.

Ummæli

Vinsælar færslur